Vefsíðan glóeyverslun.is var stofnuð 08.11.2023 af Sölva Breiðfjörð.

Ég hafði haft þann draum að stofna mitt eigið fyrirtæki í ansi mörg ár.
Ég hef alltaf haft áhuga á fallegum ljósum sem og allri hönnun í hvaða formi sem hún er. 
Til að byrja með vissi ég ekkert hvað vefsíðan ætti að heita, ég mundi svo að fjölskylda bróður ömmu stofnaði fyrirtæki sem hét Glóey og rak það í 47 ár.
Ég ákvað því að ég skyldi taka upp nafnið Glóey með þeirra samþykki.

Lénið gloey.is var upptekið og ákvað ég því að hafa það gloeyverslun.is
Glóey er fyrst og fremst vefsíða sem selur hönnunar ljós og hönnunar mottur, þar sem arkitektar, innanhússhönnuðir og einstaklingar geta keypt í sérpöntun fyrir heimili eða önnur stærri verkefni. Þegar fram líða stundir mun ég bæta við fleiri birgjum í ljósum og húsgögnum.


Ég hlakka til að eiga viðskipti við ykkur öll um ókomna tíð.

Við bjóðum uppá handunna vöru þar sem tilvist lítilla galla og mismuna í lögun og frágangi ber að líta á sem bestu sönnun á notkun handverksefna og framleiðslu.

Sölvi Breiðfjörð
CEO / Founder